|
|
30.11.2006 01:47:36 / Linda
Hellú! Heimsreisubloggið okkar er á
http://peteroglinda.blogspot.com/ Þar er svo linkur á myndasíðuna
sem verður notuð í ferðinni. Check it out!!!!!!!!!!!!!!!!!
»
09.11.2006 23:33:41 / Linda
oh, þetta veður er nú ótrúlegt. Ég er alltaf
á leiðinni í vinnuna og þarf svo að bíða heima og kemst ekki
neitt og veit ekki neitt. Svo eins og á sunnudaginn var usa
flugið fellt niður og ég og Hildur bara súrar á klakanum. Á
morgun á ég að fara í morgunflug og það er sama sagan, það
verður hringt í mig!! Jibbý. Sem sagt frí helgin mín sem átti að
byrja um fimm leytið á föstudegi byrjar einhverntímann þann
daginn. vonandi fyrir miðnætti þó. Er samt salla róleg, ég er
bara eitthvað þreytt eftir flutninga, 4 morgunflug í vikunni
ásamt öllu því sem verður að gerast fyrir ferðina.
Anyways, nú er úti veður vont, verður allt að
klessu.....en vonandi samt ekki. Allir að tjóðra niður bílana og
setja tjaldhæla á húsin.
veðurspá LA og Hawaii hlýjar mér um hjartrætur
þessa dagann og ég læt mig dreyma um algjöra slökun í jóga á
Indlandi og í nuddi í Thailandi.. Vildi að hægt væri að bíma
mann.
Góða nótt, Lindsey
»
01.11.2006 17:01:41 / Linda
Maður er náttúrulega nett klikkaður en það er
nú ekkert gaman af lífinu öðruvísi. Ég auglýsti íbúðina til
leigu frá 1.des en samdægurs fékk ég leigjendur sem þurftu íbúð
sem fyrst og við erum því bara að flytja til mömmu og Palla ekki
á morgun heldur hinn!!! Það er allt á fullu hér í að pakka og
svo er ég í símanum svona 12 tíma á dag. Ég nefnilega fékk smá
kast í smáuglýsingunum og er bara að selja hitt og þetta og
allir að hringja. Sem betur fer er ég í fríi fram á sunnudag og
hef því alveg tíma í þetta. Svo fer ég til Baltimore á
sunnudaginn og tek Hildi vinkonu með. Það verður stuð og gott að
komast út úr þessu brjálæðiskasti sem er í gangi. Hlakka til að
fara í mani og pedi og láta dekra við mig.
Vegabréfið mitt fékk ég loksins í hendurnar áðan
en það er búið að vera í Indverska sendiráðinu í Oslo í smá fríi.
Sem sagt komin með áritun þangað. Annars er líka brjálað að gera í
sambandi við ferðina, ég er búin að strauja visakortiði mitt
allsvaka lega á síðustudögum að ég veit ekkert hvað er í gangi.
Búin að kaupa flug hingaðog þangað, hótel og bílaleigubíla. Fór á
Icelandair áðan að sækja miðann fyrir Hildi, og viti menn haldiði
að ég hafi ekki átt nokkra flugmiða þar tilbúna sem ég var bara
ekkert að pæla í. Miðarnir okkar Peters til London og heim og svo
einn miði fyrir Peter til New York. Spurning um að senda kallinn
bara þangað.
Mikið verður gott að vera bara á hótel mömmu og
vera laus við þetta íbúðarkjaftæði. Svo selur maður bara bílinn í
rólegheitunum. Maður er búin að vera undirbúa sig andlega að búa í
bakpoka í 4 mánuði, svo að fara ð búa saman í pinkulitlu herbergi í
einn mánuð í viðbót ætti ekki að koma að sök.
En mikið er nú bráðhollt að flytja svona
reglulega. Ég er búin að tæma geymsluna og allt farið í
hjálpræðisherinn eða á hauganna.
Jæjæ, kallinn sem ætlar að kaupa fuglabúrið mitt
er á leiðinni og ég þarf að halda áfram að pakka. Ætla nefnilega að
kíka út í kvöld, maður fer ekkert að slá sociallífinu á frest´þrátt
fyrir flutninga, ha!
Later, Lindsey
»
09.10.2006 14:14:56 / Linda
Er að fara aftur til usa á eftir, annað
skiptið á innan við viku. En það er náttúrulega bara gaman, er
nú ekkert að kvarta. Annars er allt bara í góðum gír, bara búin
að vinna mikið og held áfram að gera það. Svo er týpískt að allt
gerist á sama tíma. Erum boðin í tvöfalt þrítugsafmæli um
helgina og það er hárkollu og búininga þema. Sama kvöld erum við
að fara á Árshátíð hjá Peter á Selfossi og daginn eftir er ég
til vara í vinnunni! Er ekki ennþá búin að redda því, en það
kemur í ljós.
Við erum nú búin að bóka öll flugin okkar í
ferðinni í kringum hnöttinn og búin að borga svo að við erum að
fara!!!!! Nú erum við að stúdera hvern stað fyrir sig, panta hótel
og bíla og fleira. Skemmtilegustu fréttirnar eru samt þær ða við
munum verja jólunum í faðmi fjölskyldumeðlima í Ástralíu. Vikký
frænka og fjölskylda sem býr þar eru búin að bjóða okkur að vera
hjá sér. Sem er bara gaman og geðveikt. Maður verður sem sagt að
grilla humar í sumarkjól um jólin. Absúrd!
Við endum svo ferðina í Austurríki á skíðum, ef
að maður ætlar að gera þetta á annað borð verður maður að gera
þetta almennilega! Það verður fáránlegt að fara úr allri sólinni á
skíði! Fjölskyldan hans Peter er nú þegar farin að hlakka til að fá
okkur. Peter verður kannski aðeins lengur en ég, enda bara fínt
eftir að við verðum búin að vera límd saman í 4 mánuði.
Ef að þið þekkið einhverja snyrtipinna sem að
vantar íbúð með öllu í 4 mánuði þá endilega sláið á þráðinn til
okkar.
Úpps, verð að þjóta til Boston
Lindsey
»
28.09.2006 20:15:29 / Linda
eða þannig. Er að fara að drepa einhvern því
ég nenni ekki að vera í meira fríi. Er búin að merja á mér öll
bein og vöðva í ræktinni því það er það eina sem ég nenni að
gera. En þessu líkur núna laugardaginn og þá fer ég örugglega að
væla yfir því hvað það er mikið að gera hjá mér. Er að vinna
mikið fyrripart mánaðarins og svo er það bara ræktin seinnipart
mánaðar. Þurfti að hafa mig alla við að fara ekki í ræktina í
dag og var orðin frekar fúl yfir því, en er komin með snilldar
hugmynd. Við Meter (hahah, finnst þetta alltaf jafn fyndið)
ætlum að labba á Úlfarsfellið á eftir og horfa á Reykjavík þegar
ljósin verða slökkt. Það er þó einhver hreyfing, ætluðum á
Esjuna, en kannski ekki sniðugt í myrkri.
Annars er bara nóg að gera sosum, maður er að
plana ferðalagið, panta bólusetningar, lesa allt um löndin sem við
ætlum að heimsækja og fleira skemmtilegt.
Já, svo fórum við í leikhús að horfa bekkinn
hennar Önnu Svövu. Endilega allir að skella sér á Hvíta Kanínu í
Borgarleikhúsinu. Algjör snilld, við vinirnir grenjuðum úr hlátri
og svo komu líka nokkur venjuleg tár. Mæli líka með Penetraitor.
Drullið ykkur nú í leikhús gott fólk. Hahaha, allir sem lesa þetta
blogg eru örugglega þeir sem fara alltaf með mér í leikhús. Ok,
verð að fara út í göngu, er að fríka út af hreyfingarleysi. Adiu.
Set bráaðum inn myndir af Helskinki, Manchester, kerry, Dublin
ferðinni minni.
»
17.09.2006 09:24:43 / Linda
Ok, nuna er eg i Dublin. Var i Kerry a irlandi i nott og thar
adur i Manchester. Verdum her i Dublin i svona 12 - 14 tima og svo
aftur til Kerry og svo ferjum vid velina heim i nott. Sem sagt bara
vid um bord. Thetta er bara rugl ad vera svona mikid a ferdinni og
erum ordin svolitid ruglud en samt bara gaman. Erm her ad fljuga
med fotboltabullur, urslitaleikur i dag og mikil stemmning. Vid
vorum oll med derhufur i fluginu til ad stydja vid Kerry lidid. Kem
heim i nott. Seeya
Linda
»
12.09.2006 11:10:57 / Linda
Djö, er madur ordin sleipur í finnskunni. Vá, veit ekki hvar ég
á ad byrja. Fyrstu dagana bjuggum vid í Helsinki og flugum eins og
brjálaedingar og vorum mjög threytt. En svo var EU med einhvern
mega fund hér og öll hótel uppbókud og planid var ad vid thyrftum
ad flytja á hverjum degi !!! Vid misstum andlitid thega vid fluttum
út í sveit, en fengum svo gedveikt fín herbergi med sér inngöngum,
stöduvatni og sauna beint fyrir framan. Vid erum náttúrulega búin
ad vera meira í sauna og ad synda í finnskum vötnum heldur en í
vinnunni sídustu daga. Svo höfum vid pantad okkur grillveislur,
spilad billjard, rifid upp stemmninguna á daudu hóteli uppi í sveit
og komid á balli. Svo fluttum vid til Fiskars sem er einn mesti
hönnunar og listamanna baer í Finnlandi og thar var okkur tekid sem
kóngafólki. Alveg yndislegt hótel, flott herbergi, gedveik sauna og
bara frábaert. Í gaer fluttum vid svo aftur hingad til Helsinki og
verdum hér thangad til adf vid komum heim. Jaeja, best ad drífa sig
í vinnuna, sem er líka bara grín. Allt flugfólk í heiminum aetti ad
prufa ad vinna hjá okkur til thess ad vita hvad vinna er! Vid erum
gjörsamlega ad slást um ad fá ad gera eitthvad um bord og finnarnir
thurfa alltaf ad bydja okkur um ad vinna haegar!! Samt bara
gaman.
Skrifa vonandi fljótt aftur
»
31.08.2006 17:17:49 / Linda
Já, lífið tekur breytingum og í stað þess að
vinna venjulega skrá og fara með Peter til New York á
laugardaginn, fer ég til Helsinki í 18 daga að vinna. Ég veit
ekkert hvað bíður mín, hvert ég flýg, hvenær, hvar ég mun búa =
ekkert. En ég veit að ég fer í flugvél til Helsinki í fyrramálið
og kem heim 18 sept í fullu fjöri. Í fyrstu átti ég að fara til
Manchester en það breyttist nú, enda er maður bara
sveigjanlegur. Hlakka mikið til og vona að það verði tími til
þess að sofa og skoða eitthvað. Það er geðveikur peningur í
þessu og mín ætlar bara að reyna að spara í þetta sinn. Enda
ágætis tilefni til sparnaðar þar sem við höfum ákveðið að skella
okkur í netta heimsreisu í des eða jan í nokkra mánuði.
Gvöð, trúi ekki að þetta sé að verða að veruleika!!!
Verð að pakka niður. Skrifa næst frá Helsinki.
Bæjó!
»
21.08.2006 22:38:22 / Linda
Ótrúlegustu hlutir hafa gerst.....sturtan er
komin upp!!!!!!!!!!!!!!! Og eins og mig grunaði fékk ég ekkert
svar frá Peter þegar ég kom heim. Hann var þá í gufu í
sturtunni með útvarpið á og í góðum fíling. Ég held að ég komist
aldrei í sturtu, hann ljómar þarna inni kallinn.
Peter keppti í hálfmaraþoni og varð í 35 sæti af
800 manns og 19 í sínum flokki. Ótrúlega flott hjá honum miðað við
að hann var ekki að æfa fyrir þetta hlaup, ákvað bara að skella
sér. ég er annars bara búin að vera að vinna, kom heim frá usa á
fimmtudag, flaug svo um helgina og fer til usa á morgun.
Hlynur og Björgvin Franz eru á landinu og það er
svo ótrúlega gaman að hafa þá. Ég var rosa heppin og fékk að vera
með BF í allann dag og hann er æði. Við fórum í sund, í búðir,
heimsóttum stoltustu ömmuna í vinnuna og Björgvin fékk að ryksuga
munninn á mér með tannlæknagræjum og fékk verðlaun fyrir. Svo
fengum við okkur blund saman og skelltum okkur svo í húsdýragarðinn
þar sem selirnir voru spennandi. Svo fórum við heim og hjálpuðum
Peter að smíða sturtuna og svo í fisk til ömmu og afa í engjo. Ég
verð því miður að kveðja litla gullið mitt á morgun.
OMG, var næstum því búin að gleyma að ég flaug
með Chippendales flokkinn til London í gær. Þvílíkir graðfolar, en
mestu ljúflingar. Maður var bara í kasti allann tímann og höfðum
bara gaman af gullhömrum sem ætluðu engann enda að taka. Fyrir
ykkur sem að geta ekki beðið eftir næsta showi, þá hef ég eftir
áreiðanlegum heimildum að þeir ætla að koma aftur!!
Jæja, best að gjöra eitthvað hérna heim. Bara
ferðtöskur, skrúfjárn og fatahrúgur út um allt. Bæó.
»
14.08.2006 13:50:23 / Linda
Jæja, loksins eru myndirnar frá laugarveginum
komnar inn á www.123.is/linda
Annars erum við bara búin að vera í bústaðnum á
Flúðum um helgina og var það bara kósí. Ég fer svo til USA á morgun
og þá byrjar önnur vinnutörn. Verslunarmannahelgin var ansi
skrautleg. Við búin að rífa út sturtuna hérna heima hjá okkur og
byrjuð að mála baðherbergið. Ég flaug 4 morgunflug í röð og var því
frekar svefnlaus því nóg var að gera þegar heim var komið. Einnig
kíktum við í útilegu á Hellu eitt kvöldið til að hitta ættingja frá
Ástralíu og UK. Ég var svo bara ágætlega hress í þennann eina frí
dag sem ég átti en sem betur fer var ég ekki kölluð út daginn eftir
því þá var ég alveg búin a´því og þreytan kom í ljós. Nú er
baðherbergið tilbúið til þess að setja upp blessuðu sturtuna,
hvenær sem það nú verður. Þannig að maður verðu bara að halda áfram
að fara í sund og í sturtu í ræktinni.
Hlynur og Björgvin Franz koma á miðvikudaginn og
við hlökkum ekkert smá til að fá að knúsa þá í tætlur.
»
17.07.2006 18:58:15 / Linda
Ég er í tómu tjóni með svefninn hjá mér. Ég
er alltaf bara sprell alive þegar klukkan er að varða eitt um
nótt og langar þá oft í bíó, horfa á mynd eða bara eitthvað út.
Peter líst ekki vel á þetta þar sem hann þarf alltaf að vakna
fyrir 7 á morgnanna. Ég rembist því eins og rjúpan við staurinn
að sofna en enda oft í tölvunni eða að lesa. Svo er málið að
vakna en það gegnur ekki nógu vel heldur því ég snooza bara eins
og ég eigi lífuð að leysa og sef oftast til svona hálf eitt!!!
Hvað kom fyrir mig eiginlega? Ég vaknaði í sjokki um daginn
guðs-lifanfi fegin að hafa ekki sofið yfir mig í vinnuna, ég
átti að mæta hálf þrjú.
Í dag var ég sem sagt alveg á smá bömmer yfir
þessu og ákvað að ég skyldi nú taka hressilega á því fyrst að ég
væri svona löt. ég fór því á línuskautunum heiman frá mér til
Hafnarfjarðar til Peters í vinnuna. Líkamlega var þetta ekki
erfitt, það var bara erfitt að komast þangað. Það voru hólar og
hæðir, brotnar gnagstéttar, vinnusvæði, umferðagötur,
malagöngustígar og ég veit ekki hvað og hvað. Hefði verið svona 40
mín ef að einn stígur hefð verið en var í 1 og hálfann tíma með
öllu þessu veseni. En hey, 1000 kaloríur og svo fór ég í sund.
Vonandi ver ð ég eitthvða þreytt á þessu. Annars
fer ég bara út að hlaupa í nótt.
Myndir frá Laugarveginum koma von bráðar á
síðuna www.123.is/linda
»
12.07.2006 23:12:42 / Linda
Eftir smá vesen, eða gewesen sein eins og maður segir, hehe (maður
er svo fyndinn á þýskunni), þá eru núna að dritast myndir inn á
síðuna www.123.is/linda. Þetta eru myndir frá Kríta, Laugaveginum,
heimsókn Lísu og Pétur Steins ti íslands og eitthvað fleira. Þetta
kemur allt inn í dag og á morgun. Hibb hibb húrrah
»
07.07.2006 04:00:18 / Linda
OMG, ég er að fríka út. Klukkan að verða 4 um
nótt og ég get ekki sofið. Ég kom frá usa í morgun og
lífsklukkan er í einhverju rugli. Hlakka eki beinlínis til
að ´vakna í morgunflug eftir ca. 24 tíma! Oj, hvað það er stutt
þangað til og ég á eftir að vinna upp þessa nótt, fara í
ræktina, taka til og þetta vanalega. Einnig á eg eftir að þvo
ýmislegt síðan að við Peter gegnum Laugaveginn síðustu helgi.
Þetta hafa verið bissý 2 vikur og því allt í upplaust
einhvernveginn.
Að ganga Laugaveginn var geðveikt gaman og pís
of keik! Við vorum búin að búa okkur undir erfiðan fyrsta dag í
mikill hækkun með allann farangurinn á bakinu (vorum með ca. 15-20
kg hvor). Þetta var ekki erfiðara en það að við gegnum fyrstu
dagleiðina á 3 tímum og þá aðra líka. Sem sagt 24 km á 6 tímum í
blindbil, hagli, stormi, rigningu, snjó og svona ágætisveðri í 30
mín. Svo vorum við veurteppt í álftavatni í heilann dag, lentum í
ýmsum ævintýrum varðandi við að vaða ár og læki. En síðasta daginn
var þurtt og gott veður sem við nutum í botn. Við vorum eiginlega í
smá sjokki yfir því hvað þetta var auðvelt og vorum mikið að spá í
að bæta fimmvörðu hálsinum við, en hættum við vegna bíla vesens
ofl. Sem sagt allir að drífa sig að ganga Laugaveginn. Mig langar
geðveikt aftur, enda erum við sko ekki hætt hér. Ég er með markmið
að ganga yfir Grænlandsjökul, Hvannadalshnjúk og á Kilamanjaro í
framtíðinni. Verð bara dugleg á Íslandi þangað til. Þetta var
ógeðslega skemmtileg ferð og við kynnstumst fullt af hressu fólki
sem að húkti með okkur í skála vegna veður.
Jæja, held að ég fari að horfa á videó. Hlakka
ekki til á morgun, má ekki við svona svefnraski. Svo er mér svo
heitt sem gerir það að verkum að ekki er hægt að liggja við hliðina
á Peter sem gæti hitað upp heilt hús áð vetri til bara með því að
sofa í því. Hann er eins og kamína kallinn!
Góða nótt eða eiginleg góðann dag, það er
fáranleg bjart hérna.
»
20.06.2006 12:24:58 / Linda
Hvar á maður að byrja eftir svona langann
tíma. Krítarferðin var alveg brillijant. Við Peter vorum
rosadugleg. Vid gengum lengsta gljúfur evrópu sem er um 16 til
20 km og það var algjör upplifun. Svo fórum við í langa ferð til
grísku eyjarinnar Santotini sem að var svo merkileg og
stórkostleg að maður er varla samur á eftir. Svo leigðum við
okkur vespu og fjalla hjól, fórum tvisvar til höfuðborgarinnar.
Og þá voru nákvæmlega 1 og hálfur dagur eftir til ad liggja í
sólbaði og sett var af stað brúnkumarathon. Allir hinir í
áhæfninni voru buin að vera 8 tíma í sólbaði á dag allann tímann
en Peter lenti samt í öðru saeti í keppninni. Ég vildi ekki
veita þeim öllum of mikla samkeppni og var thví ekki með. Enda
kom ég heim eins og ég hefði verið í sundi í laugardalnum í
svona 4 tíma á góðum degi.
Svo er ég bara búin að vera í Hreyfingu síðan að
ég koma heim og púlsúrið mitt sendi´mér skilaboð í gaer að ég hefði
æft það vel að það voru 274% fyrir þá vikuna. Við Peter erum komin
mep fjallabakteríu og erum að fara að ganga Laugarveginn þar næstu
helgi. Bið erum náttúrluge nett geðveik og erum bara að kaupa og
panta búnað hægri vinstri. Geðveikt göngutjald á leiðinni frá UK og
svo margt fleira frá USA næstu helgi.
Við Peter fórum í göngu á sunnudaginn oig gengum
að hæsta fossi Íslands eða að Glym í Hvalfirði. Djöfull er
þaðgeðveikt flott svæði, hvað er maður að pæla að hafa ekki farið
þangað fyrr!
En verð að þjóta g græja mig til fyrir flug til
Parísar eftir smá.
»
31.05.2006 17:18:46 / Linda
Það varð lítið úr fríinu ógurlega því ég var
beðin um að far aí leiguverkefni og var það bara gaman og ekki
skemmdi fyrir að ég fæ vel borgað. Ég fór sem sagt sem farþegi
ásamt hinum úr áhöfninni til London á laugardaginn, þaðan flugum
við áfram til Dublin. Það fórum við niðrí bæ og kíktum á
mannlífið, fórum út að borða og svo snemm að sofa til að vera
fersk fyrir vinnuna daginn eftir. Það var vaknað fyrir allar
aldir og við flugum (vinnandi) frá Dublin til Faro, með þedda
yndislegu farþega og allt gekk svo vel og það var svo gamana í
vinnunni. Svo flugum við til baka með farþega til Shannon í
Írlandi og vorum þar á góðu hóteli. Við fórum út að borða á stað
þar sem innfæddir hittast og borða og þar var stuð. Þetta er í
gamalli hlöðu og maturinn var geðveikt góður. Mjög skemmtilegt.
Svo daginn eftir flugum við sem farþegar til London og þaðan
heim. Við vorum alveg búin á því og hefðum helst vilja vinna
heim því það er drullu erfitt að vera farþegi!
En svo kom ný vinnuskrá út á laugardaginn og ég
drukknaði næstum því í baði í Dublin af spenningi. Ég fékk bestu
skrá í heimi!!! Elsaka vinnuna mína á svona stundum. En ég er að
fara til Krítar á mánudaginn og verð í viku!!! Hahaha, gamana
gaman. Peter er búinn að fá frí og kemur með, ef að það verður nóg
laust á föstudaginn (krossa fingur). Svo er ég bara á
eftirmiðdagsflugum, fer til usa og bara brillijant. Er í fríi þegar
Lísu Og Pétur Steinn koma og fékk frí til þess að ganga
Laugarveginn í lok mánaðarins. úh, ég er svo happy og er
náttúrulega búin að taka til í skápunum til að finna sumarfötin sem
þarf að þvo og græja fyrir ferðina. Get ekki beðið. Þarf bara að
vinna á morgun og er svo í fríi þangað til á mán.
Hafið það gott, ég skelli inn myndum bráðum
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
|