Willkommen!!!
Börn vina og vandamanna
09.10.2006 14:14:56 / Linda

USA..eina ferðina enn!

Er að fara aftur til usa á eftir, annað skiptið á innan við viku. En það er náttúrulega bara gaman, er nú ekkert að kvarta. Annars er allt bara í góðum gír, bara búin að vinna mikið og held áfram að gera það. Svo er týpískt að allt gerist á sama tíma. Erum boðin í tvöfalt þrítugsafmæli um helgina og það er hárkollu og búininga þema. Sama kvöld erum við að fara á Árshátíð hjá Peter á Selfossi og daginn eftir er ég til vara í vinnunni! Er ekki ennþá búin að redda því, en það kemur í ljós.

Við erum nú búin að bóka öll flugin okkar í ferðinni í kringum hnöttinn og búin að borga svo að við erum að fara!!!!! Nú erum við að stúdera hvern stað fyrir sig, panta hótel og bíla og fleira. Skemmtilegustu fréttirnar eru samt þær ða við munum verja jólunum í faðmi fjölskyldumeðlima í Ástralíu. Vikký frænka og fjölskylda sem býr þar eru búin að bjóða okkur að vera hjá sér. Sem er bara gaman og geðveikt. Maður verður sem sagt að grilla humar í sumarkjól um jólin. Absúrd!

Við endum svo ferðina í Austurríki á skíðum, ef að maður ætlar að gera þetta á annað borð verður maður að gera þetta almennilega! Það verður fáránlegt að fara úr allri sólinni á skíði! Fjölskyldan hans Peter er nú þegar farin að hlakka til að fá okkur. Peter verður kannski aðeins lengur en ég, enda bara fínt eftir að við verðum búin að vera límd saman í 4 mánuði.

Ef að þið þekkið einhverja snyrtipinna sem að vantar íbúð með öllu í 4 mánuði þá endilega sláið á þráðinn til okkar.

Úpps, verð að þjóta til Boston

Lindsey

Ebbilius skrifaði
Er bara her ad vona ad thu verdir i NY 20 oct, verd thar a namskeidi i einn dag. Vaeri gaman ad knusa thig adur en thu ferd i heimsreisuna, sem ad by the way eg er thvilikt abbo yfir!!!!! Sakan thin vinkona
sylvia skrifaði
hæ, djö er þetta geggjað hjá ykkur. Smá öfund í gangi en samgleðst ykkur í botn. Verðum að fara að hittast fljótlega

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.