Willkommen!!!
Börn vina og vandamanna
31.05.2006 17:18:46 / Linda

Á ferð og flugi

Það varð lítið úr fríinu ógurlega því ég var beðin um að far aí leiguverkefni og var það bara gaman og ekki skemmdi fyrir að ég fæ vel borgað. Ég fór sem sagt sem farþegi ásamt hinum úr áhöfninni til London á laugardaginn, þaðan flugum við áfram til Dublin. Það fórum við niðrí bæ og kíktum á mannlífið, fórum út að borða og svo snemm að sofa til að vera fersk fyrir vinnuna daginn eftir. Það var vaknað fyrir allar aldir og við flugum (vinnandi) frá Dublin til Faro, með þedda yndislegu farþega og allt gekk svo vel og það var svo gamana í vinnunni. Svo flugum við til baka með farþega til Shannon í Írlandi og vorum þar á góðu hóteli. Við fórum út að borða á stað þar sem innfæddir hittast og borða og þar var stuð. Þetta er í gamalli hlöðu og maturinn var geðveikt góður. Mjög skemmtilegt. Svo daginn eftir flugum við sem farþegar til London og þaðan heim. Við vorum alveg búin á því og hefðum helst vilja vinna heim því það er drullu erfitt að vera farþegi!

En svo kom ný vinnuskrá út á laugardaginn og ég drukknaði næstum því í baði í Dublin af spenningi. Ég fékk bestu skrá í heimi!!! Elsaka vinnuna mína á svona stundum. En ég er að fara til Krítar á mánudaginn og verð í viku!!! Hahaha, gamana gaman. Peter er búinn að fá frí og kemur með, ef að það verður nóg laust á föstudaginn (krossa fingur). Svo er ég bara á eftirmiðdagsflugum, fer til usa og bara brillijant. Er í fríi þegar Lísu Og Pétur Steinn koma og fékk frí til þess að ganga Laugarveginn í lok mánaðarins. úh, ég er svo happy og er náttúrulega búin að taka til í skápunum til að finna sumarfötin sem þarf að þvo og græja fyrir ferðina. Get ekki beðið. Þarf bara að vinna á morgun og er svo í fríi þangað til á mán.

Hafið það gott, ég skelli inn myndum bráðum

Eva skrifaði
Va en skemmtilegt. Goda ferd til Kritar!!!!
Eva skrifaði
Segdu mer fra Krit, komst Peter med?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.